VIKA!!!Erla Ţórđardóttir

!!! ÉG KEM HEIM EFTIR VIKUR !!!

Jeijj búin í prófumErla Ţórđardóttir

Jeijjjj æeg vildi bara láta ykkur vita að ég er búin í öllum prófunum og gekk bara geðveikt vel.
Gekk geðveikt vel í mattreiðluprófunu í dag, ég átti semsagt að gera þriggja rétta fyrir 2, íforrétt var kætkartöflusúpa, í aðalrétt, nautagúllas með kartöflumús og salati og í eftirrétt var súkkulaðimús.  Þetta var allt rosalega gott. Ég veit samt ekki hvort ég náði eða ekki, eða þúst, okkur var ekki sagt það, en ég náði mjööög líklega, allaveganna fannst kennaranum mínum gúllasið alveg geðveikt gott.

En jájá. þetta er allt frábært, en núna ætla ég að drulla mér ísturtu og bara að setja kögur á dúkinn minn.... Bæjó!

Erla perla sem borðar gerla ;);)

lalallalal prófErla Ţórđardóttir

Jájá ég er ömurlegur bloggari!! ARRGGG

Það er búið að vera brjálað að gera hérna, var á fullu í síðustu viku að klára allt saumadótið og allar prufur.
Þessi vika er svo öll búin að fara í próf, sem hafa gengið svona upp og niður, samt meyra svona upp. Gekk bara vel í öllum prófunum nema veitingatækni bóklegri, kallin gaf okkur líka sm+a rangar upplísingar um það hvað við ættum að lera og hvað við ættu helst að leggja áherslu á, en ég held nú samt að ég nái þessu alveg. Ég er semsatg búin í öllum skriflegu prósunum, ég á 2 próf eftir og þau eru bæði verklef, verkleg matreiðla og hreinlætisfræði verkleg. ég er búin að vera alveg slatti stressuð furir matreiðluprófinu, en mér gekk samt svo rosalega vel í generalprúfunni að ég er eiginlega ekkert stressuð lengur og svo ætla ég bara að líta á þetta sem góða reynsu, er eiginlega alveg skítsama þótt ég falli... hehhe, ég geri bara mitt besta.
Svo á morgun þegar ég er búin í prófunum þá er bara að drífa síg í því að klára mottuna í vefnaði, á nú rosalega lítið eftir en svo þarf ég bara að gara kögur og svo líka falda og gera kögur á dúkinn. Þá er ég bara búinn með allt saman, og þá get ég bara farið að pakka :P hehhe ég er nú líka að koma heim á föstudaginn í næstu viku !!! Hlakka ekkert smá mikið til, væri alveg til í að þetta veri búið.
En næsta vika á nú samt eftir að lípa hratt verðum bara að þrífa og taka til og pakka niður, það verður hellings tími í að horfa út íloftið og glápa á sjónvarpið. hehhe

En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengar vildi bara skrifa eitthvað smá, segi ykkur kannski á morgun hvernig mér gekk í verklega matreiðsluprófinnu ;)

Kv Erla.

Akureyri - Egilsstađir - ReykjavíkErla Ţórđardóttir

Jæja það er nú aldeilis mikið búið að gerast hjá mér síðan síðast ;)

Ég og Eva skelltum okkur til Akureyrar þar síðustu helgi og á Tískustúlkuna í Skagafyrði.
Um leið og skólain var búin að föstudeginum brunuðum við á stað, töfðumst reyndar aðeins á Eigilsstöðum því ég lét setja nagladekkin undir, batra að hafa allan vara á þegar maður ætlar alla leiðina á Sauðárkrók. hehe.
Ferðin norður gekk rosalega vel enda búin að keyra hana núna nokkrum sinnum á síðustu mánuðum ;) Við vorum búnar að pannta gistingu á Gulu villuni, sem er gistiheimili á Akureyri, og svo first það er nú kreppa ákváðum við að hafa þetta ódýrt og pöntuðum svefnpokapláss, og já sæll þetta svefnpokapláss sem við fengum stóðst langt fram úr öllum vonum okkar um svefnpokapláss, alver risa herbergi með 4 rúmum, öll ummbúnum með bútasaumsteppum og kodda, vorum líka svo ljónhepnar að við höfðum þetta herbergi allt útaf fyrir okkur, skeltum öllu draslinu á sitthvort rúmið og sváfum síðan í hinum tveimur, rosalega kósý. Skelltum okkur síðan í betri-gallan og fórum og fengum okkur að borða á Greifanum, ætluðum síðan út á djammið en first við vorum svo fljótar að borðar og djammið á íslandi byrjar alldrei fyrr en eftir miðnætti ákváðum við að rúnnta aðeins um Akureyri, Eva vildi fara og skoða öll gömlu sætu húsin, en ég endaði hjá gömlu ljótu blokkunum, það er náttúrulega fáránlega erfitt að finna eitthvað á Akureyri þar sem önnurhver gata er einstefna, en á endanum fékk Eva að sjá gömlu húsin, og var rosalega ánægð.

Ljótu gömlu blokkirnar á Akureyri sem Eva var ekki ánægð með

Ljótu gömlu blokkirnar á Akureyri sem Evu leist ekkert á.

Svo þegar við vorum búnar að keyra allar götur sem hægt er að keyra á Akureyri skelltum við okkur á Kaffi-Akureyri og dönsuðum langt framm á nótt eða svona til 2 þá vorum við orðnar svo þreyttar að við fórum að sofa.
Vöknuðum síðan eldsnemma á laugardeginum og þræddum allar búðirnar á Akureyri, aftur á bak og áfram og svei mér þá, ennþá sama draslið og var þegar við fórum síðast til Akureyrar.
Síðan fórum við snemma heim úr bænum því við þurftum að taka okkur til fyrir tískustúlkuna og síðan áttum við eftir að keyra í 1 ½ klst til Sauðárkróks, ferðin þangað gekk vel og við komumst á réttum tíma á áfangastað.
Á Tískustúlkuni var bara svaka stuð, hefði nú samt alveg mátt vera aðeins fleyra fólk, Engu að síður þá stóð Elínborg síg rosalega vel, þótt hún hafi ekki lent í neinu sæti, ég og Eva höldum því fram að það hafi verið kosningasvindl, klárlega. Eftir tískusínunguna vildi Eva endilega fara að rúnnta um Krókin svona rétt á meðan við værum að bíða eftir því að ballið byrjaði. Þannig að við fórum í smá rúnnt og þið ykkar sem hafið komið á Krókin þá er ekkert mikið hægt að rúnnta þar.... Þetta er allt bara íbúðarhverfi, og ein aðalgata sem ekkert er við nema kirkjan og síslumaðurinn eða eitthvað.....en engu að síður skemmtum við okkur bara vel.

Þetta var semsagt þegar Eva var að segja að öll gömluhúsin á Króknum væru svo sæt, þá vorum við akkúrat á móti þessu ógðslega drauðalega húsi sem var bara ekkert krúttlegt.

Við vorum semsagt búnar að keyra um allan Krókin og Eva var að tala um hven henni fundust öll gömlu húsin svo falleg og þá vorum við akkúrat staddar fyrir framan þetta ógeðslega draugalega hús... hehehe

Ballið var svo aleg ágætt, og eins og áður þá hefði alveg mátt vera fleyra fólk á staðnum, en first Sauðárkrókur er nú bara svona lítið pleis út á landi þá er ekki hægt að gera mikklar vonir um margmenni... hehe, við keyrðum síðan aftur til Akureyrar um nóttina þegar ballið var búið og sem betur fer var ég búin að setja nagladekkin undir bílinn því það var fáránlega mikil hálka, gler yfir öllu, en við komumst heilar af húfi til Akureyrar.
Á sunnudeginum vöknuðum við eldhressar og tókum draslið okkar og drifum okkur út af gistiheimilinu, komum síðan við í bakaríi til að fá okkur smá að borða áður en við héldum af stað aftur til Egilsstaða. Rosalega skemmtileg ferð, og þá held ég líka að hafi toppað hana helvítis skrapatólið sem hékk upp á vegg í herberginu okkar á gistiheimilinu, Airwick FreshMatic-Xpress air fragrence machine, sem spruataði einhverri hræðilegri hreingerningarlykt út úr sér á 30 mínotna fresti. Hehehe

Airwick FreshMatic-Xpress air fragrence machine

Airwick FreshMatic-Xpress air fragrence machine

Vikan eftir þessa ferð var rosalega erfið sem samt rosaleg stutt þar sem við vorum komin í vetrarfrí eftir hádegi á fimtudeginum, við þurftum samt sem áður að fara í 2 próf of skila verkefnum og stóru GÁMES-verkefni sem að ef við skiluðum ekki þá værum við fallin í áfanganum...

Helin heima var síðan alveg rosalega skemmtilegt, hefði samt alveg mátt vera einum degi lengur til þessa að ég hefði getað hitt allt fólkið sem mig langaði til að hitta.
Ég semsagt kom heim á fimmtudeginum með flugvél, og Elín-amma tók á móti mér þar sem mamma var í vinnuni og Kári í skólanum. Það var rosalega gaman að hitta ömmu, hún skutlaði mér síðan heim, og það first sem ég sá á bílastæðinu heima var bílinn hanns Kára, þá hefði verið frí í skólanum eða eitthvað og hann bara að hanga heima, ekkert að koma og ná í systir sína sem hann btw var búin að gleima að væri að koma heim, Kári alltaf jafn skemmtilegur. Um kvöldið fórum við síðan á American Style með ömmu og Selmu, og síðan seinna um kvöldið fékk ég logsins að hitta mömmu sem hafði verið að kenna í kvöldskólanum. Við vorum síðan bara heima um kvöldið að slappa af, horfa á sjónvarpið og skoða myndir, alveg frábært að hitta mömmu og Kára.
Á föstudeginum vaknaði ég síðan fáránlega snemma og fór í strekkingu á tönnunum, sem var örugglega leiðinlegasti parturin af hegini.
Eyddi síðan restini af deginum með mömmu eitthvað að rápa um smáralindina. Svo reyndar um kvöldið var haldið smá svona velkomin heim party fyrir mig og afmælisveisla fyrir Kára sem á btw afmæli í dag. Til hamingju með daginn Kári!! Orðinn 22 ára,. Þá komu amma og afi og Selma og Elli og Styrmir, Margrét, Ingólfur, Birta Karen og Viktor, rosa gaman að hitta alla.
Á laugardeginum kíkti ég síðam með Thelmu sætu í Kringluna, þar sem ég hitti síðan Evu sem er með mér hérna í skólanum svoldið fyndið. Síðan kíkti ég aðeins á liðið í Garðheimum, og þar hitti ég Rósu mina, æðislega gaman að hitta hana, spjölluðum alveg heilmikið saman ;) Um kvöldið fór ég síðan út að borða með mömmu og Kára og eftir það fórum við til Selmu og Ella, og vorum þar restina af kvöldinu.
Á sunnudegin
um kíktum ég og mamma aðeins í hádegiskaffi til Erlu-ömmu, aðeins að heima upp á hana, dreyf mig svo eftur heim og pakkaði niður öllu draslinu mínu, slappaði aðeins af og síðan keyrðu mamma og Kári mig út á flugvöll.
Helgin var alveg frábær, æðisleg að komast heim og sofa í sínu eigin rúmi og gera bara það sem maður vildi, ekki þurfa að búa um rúmið á morgnana og ekki vera eitthvað stöðugt að þrífa, elda eða sauma.

Svo núna er bara vikan að verða búin og alltaf nóg að gera
Ég ætla að segja þetta gott í bili, og ég skal reyna að vera duglegri að blogga.

Erla

Jiiiii SNJÓR !!!Erla Ţórđardóttir

Hæhæ, ætla bara svona rétt svo að láta ykkur vita að ég sé á lífi....

Eins og alltaf þá er alveg brjálað að gera í skólanum, er búin með allar prúfurnar sem ég var að gera í saumum og er núna byrjuð að gera buxur, búin að finna svið og er á kafi í að gera svona prufubuxur úr einhverju léreftsefni, svo var líka að koma í hús efnið sem ég ætla að nota í barnaskyrtuna, það verður svona hvítt hör efni rosalega fínnt, síðan er ég líka búin að ákveða hvað ég ætla að sauma út sí skyrtuna, þannig að næst á dagskrá hjá mér er að taka upp sniðið af skyrtuni og setja það á efnið og svo bara byrja að sauma.

Í útsaumnum er ég svo að gera einhvera snyrtibuddu sem er skylduverkefni, með einhverju blómi, svo ætla ég að gera rosalega flotta blómamynd, er búin að verla myndina og allt á bara eftir að flytja hana yfir á efnið og svo ákváðum ég og Eva að gera svona "næturgrímu" svona sem maður stur fyrir augun þegar maður sefur til að það verði meyra myrkur, geðveikt cool, og ætlum að sauma eitthvað út í það.

Í vefnaðinum er ég svi að fara að gera dúk eða renning á boð, sem verður alveg rosalega flott, er alveg á fullu að ákveða hvernig ég ætla að hafa hann og hvernig mynstur á að vera í honum. Hann verður úr því sem heitir Rósabandavefnaður, alveg æðislegt.

En nóg komið af skólanum, ætla aðeins að segja ykkur hveð við höfum gert utanskólans.

Við stelpurnar, Ég, Eva og Sonja fórum í helgarferð til Akureyrar núna fyrir stuttu, sem var alveg hrikalega gaman, gistum í íbúð með foreldrum hennar Evu  sem þau voru með.
Það var alveg eins og við hefðum alldrei séð búðir áður sví við þræddum gjörsemlega allar búðirnar á Akureyri, fórum meyra að segja á einhvern svakalegan útsölumarkað hjá 66° Norður og keyptum okkur allar þessa svakalega fínu jakka sem eru vindheldir, vatnsheldir og anda vorðu áður á 33000 en við fengum þá á 7500 alveg gjafverð.
Síðan hitti svo skemtilega á að fleyri krakkar ú skólanum vorðu líka á Akureyri þannig að við hittum þau og fórum með þeim út að borða, fyrst á Greifan á föstudeginum og síðan á Bautan á laugardeginum og það var alveg rosalega gaman. Þessi ferð var alveg rosalega skemmtileg.

Síðan síðustu helgi þá fórum við upp á Skriðuklaustur í kaffi, þá er alltaf á sumrin svona kaffihlaðborð á sunnudögum og þetta var seinasti sunnudagurinn, heppin við, við fengum þetta fína bakkelsi og borðuðum alveg á okkur gat!

Núna næstu helgi erum við svo örugglega að fara aftur norður, þá er hún Elínborg að fara að taka þátt í Skagafjarðarstúlkuni eða eitthvað þannig og við hinar ætlum að fara og stiðja hana, það á örugglega eftir að vera alveg svaka stuð, það eina sem okkur vantar til þessa að komast eru vetrardekk á bílana... :P hehehe

Svo helgina eftir næstu helgi þá er önnin hálfnuð og þá er vetrarfrí í skólanum og þá kem ég heim ! Hlakka ekkert smá mikið til! kem á fimtudagskvöldinu um 9 og fer svo á sunnudeginum um 4. þannig að þá verður alveg nóg að gera hjá mér þarf sko að stússast alveg heilan helling verð allavegana að komast í Smáralindina og Kringluna!! hehehe

En ég ætla að hafa þetta nóg í bili, stelpurnar eru alveg óðar vilja fara að gera eitthvað, keyra í kringum lagarfljóðið eða eitthvað....
Þangað til næst....bæjó

Kv Erla

Klukk ?!?!?!Erla Ţórđardóttir

Jæja ég var víst "klukkuð" af Ástu Kareni vinkonu minni þannig að ég ætla að svara þessum spurningum.

 

Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:

 

Unglingavinnan

Bíó-Grill Sjoppa

Eldhús Landspítalans

Garðheimar

 

 

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:

 

The Notebook

P.S I Love You

How to lose a guy in 10 days

Notting Hill

 

Fjórir staðir sem ég hef búið á:

 

Fljótin

Álftanes

Kópavogur

Hallormsstaður

 

Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar:

 

Heroes

House

The O.C

Dexter

 

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:

 

Ítalía

Tyrkland

New York

England

 

Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:

 

Mbl

Leikjanet

Myspace

google

 

Fernt sem ég held upp á matarkyns:

 

Skítahoppari

Pönnukökur

Lax

ís

 

 

Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:

 

Sorry Les ekki bækur, og ef ég les bók þá les ég hana ekki aftur.

 

 

Fjórir bloggarar sem ég klukka:

 

Matti
Steinunn
Hlín
Veit ekki.


Jeijj geggað gaman !!! Hehehe

Netiđ niđriErla Ţórđardóttir

Hæ hæ þið öll !
Ég veit að ég var búin að segja að ég ætlaði að vera dugleg að blogga, sem ég væri örugglega búin að vera ef það væri ekki svona brjálæðislega mikið að gera og líka ef netið hefði ekki legið niðri síðan um síðustu helgi, já netið er búið að liggja niðri og það var bara að koma inn í gær. Svo er þessi vika búin að vera brjálæði, Þessa vikuna var minn hópur (A-hópurinn) í eldhúsinu og svo er ég líka búin að vera í umsjón í eldhúsinu.
Að vera í umsjón í eldhúsinu er rosalega mikið puð, við erum 3 saman, ég, Frikki og Þóra, og okkar hlutverk er að vakna aðeins fyrr á morgnana og taka til það sem á að vera í morgunmat, og það er sko flóknara en að segja það, þetta á að líta út eins og morgunmatur á hóteli, verðum að raða öllu áleggi snirtilega á bakka setja smjörið og þannig dót á diska og serféttur á milli, setja sultuna í litlar skálar og skera og raða tónmötum, gúrkum og paprikkum á disk. Þetta þarf allt að vera tipp topp. Síðan þurfum við að taka saman eftir morgunmatin og þurka af öllum borðum. Næst þurfum við síðan að taka til eitthvað snarl fyrir kaffitíman og ganga frá. Svo þurfum við að ákveða hvað á að vera í kvöldmat og elda það, síðan þurfum við að taka til eftir matin, þvo upp alla diskana, ganga frá afgöngunum, þrífa matsalin (þurka af borðum og skúra), þrífa allt eldhúsið og skúra þar, og síðan í lokin gerum við aðeins klárt fyrir morgunmatin, setum diskana á borðið, setum áleggið að bakka, fyllum á Cheriosið og kornfleksið, tökum úr brauð og alveg fullt, þetta þurfum við svo líka að gera um helgi, umsjónin er samsagt í eina heila viku. og sem beturfer er síðast dagurinn á morgun.
En að vera í eldhúsinu þessa vikuna er búið að vera roslega gaman, en líka rosalega erfitt, ætla að segja ykkur frá því svona dag fyrir dag.....
Mánudagur: Þá fékk ég það hlutverk að búa til Spænska hvítlauks og kartöflusúpu, sem gekk rosalega vel og súpan var mjög góð, síðan voru hinir krakkarnir að gera eitthvað alskonar, t.d. hálfmána með hakki, kartöflubuff, kotasælubollur og sósu og salat.
Þriðjudagur: Þá er venjulega eitthvað roslega flott, þá á að vera þriggjarétta, en fyrst þetta var fyrsta vikan okkar þá var bara tvírétta, í aðalrétt var parmesankjúkklingur og Fontant kartöflur og í eftirrét var gulrótakaka, ég semsagt þurfti að gera kartöflur og kjúkkling fyrir 5, því bakararnir sáu um að gera kökuna og ein stelpan sá um að gera salat og sósu. Þetta gekk alveg roslega vel, rosalega auðveldur kjúkklingur, en kartöflurnar voru aðeins flóknari, við þurftum að túnera þær og síðan steikja þær á pönnu og síðan sjóða þær upp úr eitthverju kjötsoði, og það er f*** leiðinlegt að túnera svona grænmeti... en þetta gakk samt roslega vel og var líka roslega gott
Miðvikudagur: Þá voru fiskibollur í matinn og kartöflur, við þurftum að búa til fiskibollurnar alveg frá grunni, þurftum að búa til kjötfasið, eða fiskifasið, eða hvað sem það er nú kallað, síðan áttum við að gera sósu og salat að eiginvali, ég gerði þetta fína salat sem var bara kál, tómmata og appelsínur, síðan ákað ég að gera brúna lauksósu á bollurnar sem bollurnar voru síðan bornar fram í, já á miðvikudögum þá er svona heimilismatur, þá eru tvö langborð og maturin borinn fram á fötum. Roslega fínt og gott
Fimtudagur: Þá er venjulega hann Þráinn skólastjóri að kenna okkur svona framandi mat, mat frá ýmsum heimshornum en fyrst hann er í útlöndum þá kendi Hrafnhildur okkur bara og þá var aftur tveggjarétta, þá var reyndar forréttur og aðalréttur, í forrétt ar rækjukokteill og í aðalrétt var kjúkklingur í appelsínusósu, allt alveg rosalega gott, en það var rosalega stressandi að gera þetta allt, því við þurftum náttúrulega að gera rækjukokteilin, kjúkklingin, einhverskonar kartöflur að eiginvali og meðlæti að eiginvali. En þetta heppnaðist þó allt, þó maturinn hefði verið 15 mín og seinn....
Föstudagur: Þá er afgangadagur, við semsagt söfnum öllum afgöngum yfir vikuna og gerum eitthvað við þá á föstudögum, og ég veit ekki hvort þið trúið því, en þetta er oftast besti maturinn sem við fáum :P hehehe

Jæja ég ætlaði að setja myndir hérna inn á bloggið en það er eitthvað að stríða mér þannig að ég ætla bara að stja link inn á myndirnar þatta er samt eitthvað skrítið þannig að þið verðið að "klippa" urlið og opna nýtt net og "líma" urlið þar. Þar er svo hægt að fletta niður og á fleyri blaðsíður, svo er hægt að ýta á myndirnar til að þær stækki. Vonandi fattiði þetta, ef ekki þá þurfiði bara að fá einhvern eins og hann Kára til að hjálpa ykkur :)

Þetta eru semsagt gamalar myndir af mér og svo koma neðst og á næstu blaðsíðu eitthverjar myndir héðan:
http://viewmorepics.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewPicture&friendID=135643388&albumId=1011320

Þetta eru myndir síðan ég, Sonja og Eva fórum á Cafee Nielsen:
http://viewmorepics.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewPicture&friendID=135643388&albumId=1886376

Svo eru þetta svona alskonar myndir, eitthvað af krökkunum og síðan við stelpurnar fórum upp að Fardagafossi og eitthvað:
http://viewmorepics.myspace.com/index.cfm?fuseaction=user.viewPicture&friendID=135643388&albumId=1888725


Ég ætla að hafa þetta gott í bili, reyni að skrifa sem fyrst aftur.
Kv Erla

P.s. Ég er búin að fara í fyrsta prófið mitt sem var í næringarfræði, og það gekk alveg rosalega vel :)

skólinn........Erla Ţórđardóttir

Jæja þá er ákkúrat vika liðin síðan ég kom hingað, finnst samt eins og ég hafi verið hérna miklu miklu lengur, við krakkarnir erum bara öll orðnir roslega góðir vinir, náum rosalega vel saman eða svona oftast....jámm það finst nefnilega sumum svoldið gaman að vera með læti á kvöldin og finnst roslega spennandi að vera komin á heimavist, halda bara að þau getir gert það sem þeim sínist, svo eins og kannski ekki allir vita þá er þetta hús alveg lengst út í skógi sem er alveg slatti spúkí, og svo hafa svona í gegnum árin safnast saman eitthverjar spúkí sögur, drauga sögur, í sambandi við skólan sko, og já sumir krakkarnir eru að gera svoldið mikið úr þessum sögum, og semsagt í gærkvöldi kl 23:30 ákváðu 4 krakkar að fara í andaglas, og allir hinir í húsinu voru nástum því að fríka út af hræðslu, sátum öll í stiganum sem liggur niður í aðlarímið og biðum eftir að krakkarnir hættu þesu rugli, það var engin sem þorði að fara að sofa, svo logsins einhvertíman um 00:15 þá hættu þau í þessu rugli, en það var samt eingin sem þorði að fara að sofa það voru allir bara að panikka, held að ég hafi ekki sofnað fyrr en um 2 eða 3 og síðan þurftum við að vakna kl 07:30 í morgun, og það voru sko allir bara að sofna í tímum í dag.....

Jæja nóg komið af þessu draugarugli, ætla aðeins að segja ykkur frá skólanum og náminu, okkur er semsagt skipt í 2 hópa, A og B, og ég er í A-hópnum, svo er þessu þannig skipt að við skiptumst á viku og viku að vera annað hvort í eldhúsinu eða í fatasaumnum og núna þessa vikuna er B í eldhúsinu og A í fatasaumnum, ég er samsagt í fatasaumnum og þar er bara roslega gaman, erum núna bara búin að vera að gera eitthver prufuverkefni, sem er allt í lagi, á meðan er B í eldhúsinu og gerir rosalega góðan hádegismat handa okkur, í gær fengum við svona allskonar sitt lítið af hverju, sallat, böku með grænmeti og skinnku, kaldan brauðrétt, rosalega góðar kartöflur og alveg fullt svo í dag þá er svona eitthvað flott, þá eiga kokkarnir að vera í kokkafötum og svo er þjónað til borðs, alveg rosalega gaman og í dag fengum við snitsel með raspi og lauksósu og kartöflur og svo í eftirrétt fengum við súkkulaðimús, þetta er alltaf semsagt svona hjá þeim sem eru í eldhúsinu, það er eitthvað svina létt á mánudögum, svo á þriðjudögum er eitthvað flott alltaf tveggja rétt eða þriggja rétt og þjónað til borðs, svo á miðvikudögum er held ég bara aftur svona léttur matur svo á fimmtudögum er svona alskonar matur frá mismunandi löndum, fáum svona aðeins að kinnast matarvenjum annara landa, og svo á föstudögum er held ég bara aftur eitthvað létt þá er líka skólin búin strax eftir hádegi. Alltaf bara kennt til hádegis á föstudögum sem er rosalega næs.

Svo er líka komið í ljós hvaða val ég fer í, ég fer í  vefnað og útsum, útsaumurinn er á þriðjudögum og vefnaðurinn á fimmtudögum, þar var semsagt fyrsti útsaumstímin í dag, þar er alveg roslega spennandi en rosalega erfitt líka og það er líka ótrúlega tímafrekt, þannig að þar verður örugglega fullt að gera um helgar að sauma, en þessir semsagt valáfangar eru alltaf seinnipartin frá 16-18:30, þannig að eins og í dag þá var ég í skólanum frá 8 í morgun til 18:30, úff maður er alveg uppgjefin og svo á morgun þá er svona þrifdagur, þá eigum við að tala rosalega vel til í herbergjunum okkar og þrífa allt þar, og svo plús það þá er ég líka með þrif umsjón, og í henni felst að þrífa skólan mitt hlutverk er nú samt sem beturfer frekar lítið þarf bara að sópa stigana, alveg frá risi og niður, það er ekkert mál. Svo alla næstu vikur er ég með matar umsjón, þá erum við reyndar 3 saman og þá þurfum við að vakna fyrr og taka til morgunmat, taka til kaffið og elda kvöldmat og gerða þetta líka um helgar og svo þrífa náttúrulega allt eldhúsið hátt og látt eftir okkur, og þegar maður er með svona umsjón þá verður maður alltaf að vera í skólanum, getur ekki farið neitt, en sem beturfer þá er ég með umsjón í næstuviku og svo bara ekkert meyr held ég, en það er samt eitt, við þurfum sjálf að ákveða hvað við ætlum að hafa í kvöldmatin, þannig að endilega ef þvið vitið um eithverjar létta rétti til að gera endilega látið mig vita, þetta er alveg hræðilegt, og það þíðir ekket að segja að við eigum bara að hafa eitthvað sem fæst næatum tilbúið út í bónus, við þurfum að gera allt!, það voru krakkar um dagin sem höfðu pizzu og þau þurftu sjálf að búa til pizzasósuna, frekar glatað. En þetta reddast nú samt allt vonandi.....

Þetta er nú samt ekkert smá sem þarf að gera, maður gerir EKKERT nema læra, þrífa og borða, fær nánast engan tíma fyrir sjálpan sig, svo náttúrlega ef við erum með eitthverja svona umsjón þá er þetta ennþá erfiðara.

En jæja ég er alveg að sofna hérna, ætlaði að vera farin að sofa fyrir löngu, en já sorry ég er ekki búin að setja inn neinar myndir en ég sakla gera það um leið og ég hef lausan tíma næst, kannski á morgun eða bara um helgina.

Vona það þið hafið það öll gott J

Kv Erla.

Ferđasagan og ađeins um skólanErla Ţórđardóttir

Jæja núna sit ég hérna inni í fína herberginu mínu og er að spjalla við krakkana úr næstu herbergjum, og herbergisfélagi minn ákvað að fara í sturtu en sturtan er ísköld. Það er semsagt bara heitt vatn í eitthverjum tanki niðri í kjallara og svona seint á kvöldin er bara heita vatnið búið....frekar glatað...hehehe og akkúrat í þessum töluðu orðum þá datt rafmagnið út, í annað skipti í dag :P frekar spúkí.... en allavegana þá ætla ég aðeins að segja ykkur frá ferðalaginu mínu hingað...

Ég semsagt lagði af stað á mánudagsmorguninn, með fullan tank af bensíni og fullan bíl af fötum og skóladóti, en greyið ég komst ekki lengra en út af bílastæðinu fyrir utan blokkina heima þegar ég þurfti að hringja í mömmu...(hringdi bara til þess að spyrja hana hvort ég þirfti að athuga með loftið í dekkjunum áður en ég legði í hann)....en ferðini var heitið norður til Akureyrar með smá stoppi í Fljótunum. Ferðin gekk alveg vosalega vel, nema ég þurfti held ég að stoppa í hverji einustu sjoppu sem á leiðina var til þess að pissa...hehe svo var reyndar alveg grenjandi rigning eiginlega alla leiðina, og mér finnst nú ekkert rosalega gaman að keyra í rigningu, en ég bara plöggaði Ipodnum í græjurnar og steig bensínið í botn....(eða þannig).
Svo þegar ég kom í fljótin var bara sól og blíða, alltaf gott veður þar :) Ég ákvað að fara inn að Sólgörðum í gamla skólan minn og sjá til hvort ég myndi ekki rekast á eitthverja sem ég þekkti og jú viti menn þar var hún Gunna (gamli kennarin minn og vinkona mömmu), sem reyndar þekti mig ekki....fyrst..... kom á móti mér og bauð mér góðan daginn og spurði hvort hún gæti aðstoðað mig eitthvað....ég bara brosti og sagði hæ Gunna....hún horði á mig með stórum augum og brosti síðan alveg aftur fyrir eyru og sagði ERLA ?!?!?!
Ég fór með henni inn í skólan og skoðaði mig aðeins um, Jjjiiii minn hvað allt var orðið lítið....eða ég bara orðin stór :P hehehe, stóri langi gangurinn sem við hlupum fram og til baka og fannst svo geeeeðveikt langu var núna bara orðin stuttur og mjór gat tekið hann í 10 skrefum eða eitthvað :) Eftir að við vorum búin að skoða skólan smá vildi Gunna endilega að ég kæmi heim með henni (shitt rafmagnið datt aftur út og nú er sko myrkur! ég held að ég þurfi að fara á Eigilsstaði og kaupa mér vasaljós) við þurftum þó að koma við á Ketilás (eina búðin í Fljótunum) og kaupa eitthvað með kaffinu…. og þar hefur líka allt minnkað eins og í skólanum.... svoldið skrítið haa?? Allavegana fórum við svo heima á Helgustaði og þar tók Steini (maðurinn hennar Gunnu) á móti okkut og viti menn hann mundi líka eftir mér
J Ég stoppaði þar í svolitla stund, og fékk þetta frábæra kaffi, bruðlur, brauð, kleinur, ástarpungar og skúffukaka ekkert smá! Svo vorum við eitthvað að tala saman og þá kom það í ljós að ég ætlaði að gista á gistiheimili á Akureyri...en NEI, Gunna þvertók fyrir það ég átti sko ekkert að gista ein á eitthverju gistiheimili, og var fljót að taka upp síman og hringja í Þuru (dóttur sína) og biðja hana um að leifa mér að gista hjá henni á Akurayri, og jú jú auðvitað var það sko ekkert mál.

Eftir svo aðeins meira spjall og eina kökusneið í viðbót lagði ég í hann til Akureyrar, gat samt náttúrulega ekki farið úr sveitini án þess að kíkja upp að Skeiðsfoss (þar sem ég átti einusinni heima) þar var náttúrulega allt eins og áður nema bara allt orðið miklu minna, stóra brekkan fyrir framan húsið var bara orðin lítill hóll en það eina sem hafði stækkað var öspin fyrir aftan húsið, orðin örugglega meyra en helmingi stærri en húsið sjálft :P Allavegana nóg komið af sveitinni, ég brunaði á Akureyri til Þuru og þvílík gestristni þar.


Okey, bara að láta ykkur vita þá skrifaði ég fyrri hlutan af blogginu í gærkvöldi og það var þá sem rafmagnið var alltaf að fara af og allir voru bara komnir inn í herbergið til okkar þannig að ég hætti að skrifa og kláraði bloggið í dag.


Daginn eftir lagði ég svo á stað til Eigilsstaða, ferðin þangað gékk alveg rosalega vel, var líka með þennan frábæra vegaaltas af íslandi, eitthvað voða fenzí sem mamma fékk í gjöf frá Iðnskólanum.....ákvað svo að stoppa ekkert á Eigilsstöðum heldur bara halda beint áfram til Hallormsstaðar.

Þegar ég kom í skólan var mér sínt herbergið mitt, sem er alveg rosalega fínnt og stórt, og alveg sér baðherbergi inn af því, en til þess að fá að vera í þessu fína herbergi varð ég að vilja verða svokallaður vistarvörður, eða eitthvað þannig, í því felst semsagt að læsa húsinu kl 11 á kvöldin og opna það um helgar, og hringja í skólastjóran ef eitthvað bjátar á, semsagt ekkert hræðilegt eða þannig. En sem beturfer eru líka fleiri svona vistarverðir, sem eru Sonja sem er herbergisfélagin minn, og stelpurnar í herberginu á móti, Elín og Eva.

En eins og ég sagði áðan þá heitir herbergisfélagi minn Sonja hún er 21 og kemur líka úr bænum. Ég nenni eiginlega ekki að fara í öll smáatriði sem ég hef verið að gera núna síðan ég kom hingað en svona í stórum dráttum er bara búið að vera rosalega gaman, við erum 21 hérna á vistinni á ímsum aldri, alveg frá 16 og upp í 28 ára, það eru 6 strákar og 15 stelpur. Við erum búin að fara út og týna ber, bláber, rifsber og hrútaber sem við síðan gerum svo eitthvað skemmtilegt við seinna, síðan erum við búin að fara á smá fyrirlestra um eldhúsið og hvernig, hvar og hvenær við þvoum fötin okkar, og síðan erum við líka búin að heyra aðeins um valið, þá semsagt listgreinarnar, sem eru annars vegar eitthver teikning, leir, málun, glergerð og eitthvað þannig og hins vegar, smíði, og búa til sköft á ostaskerara og skeiðar úr beini, og svo er líka eitthvað verið að vinna með málma, setja eitthvað silfur og dót. Hljómar bæði alveg rosalega spennandi, en svo eru líka allavegana tvö önnur fög sem eru líka í val, sem eru vefnaður og útsaumur, það á samt efir að kinna það fyrir okkur eitthvað nánar.

En jæja ég held að ég ætli að láta þetta vera nóg í bili, er alveg orðin rugluð í því hvað ég á að segja og hvað ekki. Reyni kannski að setja eitthvað stutt blogg inn um helgina, þá öruglega sunnudaginn.

Allavegana bless í bili.

Kv Erla.

Allt ađ gerast og engin tími.Erla Ţórđardóttir

Jæja ég var víst búin að lofa að vera duglegri að blogga....

Við skulum bara byrja á byrjuninni og byrja á því þegar ég fór til útlanda :) ætla nú samt bara að hafa það stutt og laggott.

Ég semsagt flaug til London með mömmu, Selmu systir mömmu og Ella manninum hennar, (og hvað kemur til það var ekki seinnkun á flugvélinni, meyra að segja vorum við held ég með þeim síðustu sem komum inn í vélina því Elli þurftir að fá sér keffi og koníak). En við semsagt komumst til Londan þar sem við hittum síðan Matta frænda og Elínu frænnku (eða börn Selmu og Ella (okey smá útskýringar...)) þaðan fórum við síðan öll til Hamton, sem er pínilítill bær á milli Kingston og Richmond, sem eru útkverfi frá London....allavegana þá var alveg rosalega gaman að hitta alla og við gerðum fullt skemmtilegt saman, við skoðuðum höll einhvers konungs, Hinrik eitthvað held ég, það sem Selma er svo líka að læra að sauma í The Royal School of Needlework, roslega fensí eitthvað.  Það var nú samt alveg ágætt, þá var sérstaklega gaman að skoða flottu garðana sem voru við höllina, alveg sjúkir, og svo má ekki gleyma völundarhúsinu, sem við fórum í þar sem ég og Matti vorum saman í liði á móti Elínu og Ella, að finna leiðina út, og við náttúrulega rústuðum þeim! Við fórum líka ölla saman út að borða sem var rosa gaman og svo höfðum við það bara notalegt.
Þegar við vorum búin að vera þarna í 3 daga hélt ferðalagið okkar mömmu áfram við ákváðum að fljúga til Portúgal, fara aðeins í sólina, samt var nú alveg drepheitt í Kingston þessa daga sem við vorum þar..
En ég nenni eiginlega ekki að skrifa neitt rosalega mikið um portúgalsferðina en ég ætla að setja smá svona punkta um skemmtilega hluti sem við gerðum:

-Kemur seinna-

Svo þegar ég og mamma vorum búnar að vera í Portúgal í 10 daga þá flugum við aftur til London og vorum þar í 2 heila daga, bara að versla og dúlla okkur eitthvað, en þá þurfti náttúrulega að vera alveg grenjandi rigning þannig að við vorum mest hlaupandi á milli búða til að forðast rigninguna, Við fórum samt líka í leikhúsið og sáum Mamma Mia, sem er náttúrulega ekkert nema ógeðslega gaman, ég kvet bara alla sem fara til London að fara í leikhúsið og sjá Mamma Mia, það er ekkert nóg að sjá bara bíómyndina, hehehe. En ég ætla ekkert að blaðra meyra um þessa utlandsferð, ætla að fara að snúa mér að hlutum sem eru alveg að fara með mig þessa daganna.....

....Húsmæðraskólinn....
Jább, ég er semsagt að fara í Húsmæðraskólann á Hallormsstað og fyrir ykkur sem vitið ekki hvar það er þá er það rétt hjá Eigilsstöðum, sem ef þið vitið ekki hvar Eigilsstaðir eru þá eru þið fífl og skulið bara fara og Googla það.
Allavegana þá er ég að fara á Mánudaginn, ætla að keyra til Akureyrar og gista þar í eina nótt að halda svo áfram austur á þriðjudeginum því sólasetning er þá um kvöldið.
Ég er semsagt að farast úr stressi, ég veist nákvæmlega eiginlega ekki baun, ég hef þannilagað ekki hugmynd um hvað ég á að taka með mér, ég veit ekkert hvort ég er ein í herbergi eða ekki, ég veit ekki hvort það er nettenging þarna eða ekki, ég veit ekki hvað er inni í herberginu, hvort það er stórt, meðal eða bara pínulítil kompa?, er sjónvarp í öllum herbergjum eða þurfa allir að horfa saman á eitt sjónvarp?, hvar fer ég í sturtu?, er ein og ein sturta eða fara bara allir saman í sturtu eins og í eitthverjum íþróttaklefa, hvar er klósettið?, hvar bursta ég í mér tennurnar?, HALLÓ, ég veit að ég á að taka með mér lak á rúmið en ég vet ekkert hvernig rúm þetta er, hvað er það breytt?, er bara þunn dýna? eða er stór dýna? þarf ég teygjulak eða bara venjulegt lak? Halló hvernig væri að gefa manni aðeins betri upplýsingar, ÉG er búin að fá eitt bréf frá skólanum sem var eitt A4 blað og meyrihlutinn af því er bara eitthvað verið að segja hvenær skólin byrjar og hvenær hann er búinn og eitthvað hvað eigi að borga mikið og hvenær eigi að borga það. svo er pínulítill listi um hluti sem ég á að taqla með...ætla í ganni að skrifa hann upp hérna og leyfa ykkur að pæla aðeins í honum....
  • Sæng, koddi, rúmteppi og handklæði. -(shitt ég nennni sko ekki að þurfa að búa um rúmið mitt á hverjum morgni)
  • Sængurver, koddaver og lök. -(okey en hvernig lök???)
  • 3-4 hvíta boli (ekki mittis). -(Haaaa? mittis? hvað er það?, ef það er það sama og magabolir þá eru magabolir löngu hættir að vera í tísku!)
  • Inniskó (ekki tréklossa eða tauskó). -(Hver gegnur í tréklossum??)
  • Vasareikni.
  • Saumavél + leiðbeiningar (ef nemandi á saumavél). -(okey sem betur fer ætlast þau ekki til þess að maður kaupi sér saumavél)
  • Saumnálar (blandaðar stærðir)
  • Málband, sníðaskæri og brefskæri. -(okey getur skólin ekki skaffað neitt?)
  • Títiprjóna og fínar jafanálar.
  • Svartar buxur eða pils, hvít skyrta. -(bíddu...til hvers, eigum við að vera í eitthverskonar skólabúning eða?)
  • Svartan og hvítan tvinna.
  • Tréliti, sprettuhníf.
  • Fatakrít og fingurbjörg. -(Aftur til hvers? Hver notar fingurbjörg?)
  • Viðeigandi klæðnað þ.á.m. hlýjan fatnað.
  • Herðatré.
Okey endilega ef ykkur dettur eitthvað í hug sem ykkur finnst að þurfi að bæta við listan endilega skrifið það í comment.

Mér finnst þetta eitthvað roslega stuttur listi, miðað við það að ég á að vera þarna alveg fram að jólum, svo reyndar er líka á þessu blaði 5 bækur sem ég þarf að eignast, og fjandakornið ég er búinn að geta keypt eina bók. Þannig að ef eitthver á einhverja af þessum bókum (sem ég efast um) þá væri frábært ef ég gæti fengið hana lánaða...
  • Að suma pils, buxur og skyrtu
  • Kennslubók í Matreiðslu
  • Hreinlætir og örverufæði
  • Næring og Hollusta (fann þessa)
  • Textílfræði
En jæja, ég ætla að fara að gera eitthvað af viti, fara að setja allt fína nýja saumadótið mitt á einn stað eða eitthvað.
Endilega verið dugleg að commenta því þá nenni ég frekar að blogga :)
Næsta blogg kemur þegar ég verð komin austur og verð búin að komast að því hvort það er internettenging þarna eða ekki...

Kv. Erla


Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Erla Ţórđardóttir
  • Netfang: erla_88@hotmail.com
  • Símanúmer: 6913125
  • Atvinna: Garđheimar
  • Hjúskaparstađa: Á lausu

Auglýsing

Eitthvađ um mig.

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Klukkan

Könnun

Flottasta nafniđ

Myndir '07